Nú líður brátt að lokum Skapandi sumarstarfa í Garðabæ þetta árið. Sumarið hverfur svo snöggt að loka listviðburðurinn er eftir aðeins fjóra daga. Sýningastaðurinn er Grósku salurinn á Garðatorgi, þar sem sýning síðasta árs var einnig. Ég mun fara út fyrir þægindarammann og halda ljóðasýningu ásamt því að vera með lokatónleika með Kjartani. Ljóðin hafa átt hug minn allan núna í júlí en þessa dagana erum við Kjartan að æfa ný lög til að spila næsta þriðjudag kl. 18 á sýningarsvæðinu. Ég tók saman nokkrar myndir frá sumrinu sem tengjast tónlistarstarfinu. Það er smá texti undir þeim fyrir forvitna, hann ætti að gefa ykkur smá innsýn í sumarið sem er að líða. Lokasýningin verður opin 25. - 26. júlí, mánudag og þriðjudag á milli 17:00 - 20:00. Ljóðin mín verða til sýnis allan tímann, en við Kjartan munum aðeins spila kl. 18:00 á þriðjudeginum.
0 Comments
|